Landssambandið sinnir almennri hagsmunagæslu fiskeldis í landinu. Markmið samtakanna er að efla og styrkja fiskeldi á Íslandi. Að þessu verður unnið m.a. með því að:

Marka stefnu í fiskeldis- og hafbeitarmálum og vera opinber málsvari fiskeldis í landinu.
Afla upplýsinga um markaði og miðla þeim til eldismanna.
Leggja grunn að samræmdu gæðamati afurða.
Stuðla að fræðslu og miðla upplýsingum til félagsmanna og almennings.
Rétt til inngöngu í samtökin hafa félög og einstaklingar sem stunda eldi dýra í ferskvatni eða sjó, eða stunda hafbeit og uppfylla öll skilyrði um eldi samkvæmt íslenskum lögum.

          Stefnumótun í íslensku bleikjueldi, nóv 2006. Sjá meira...