30.01.2012

Bleikja var það heillin. Bleikja er næringarrík og góður heilsukostur. Sjá nánar....

19.01.2012

Íslensk Matorka í Fellsmúla. Eldi á allt að 100 tonnum af bleikjuseiðum og 250 tonnum af borra á ári, er ekki líklegt til að hafa í för með sér umtalsverð umhverfisáhrif og skuli því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Sjá nánar....

13.01.2012

Erfðaupplýsingar bleikjunnar kortlagaðar á Norðurheimskautssvæðinu.

Í verkefninu nýtist vel sú raðgreiningartækni sem Matís hefur yfir að ráða til erfðarannsókna. Sjá frétt.....

11.01.2012

Skýrsla SINTEF um greiningu á slysasleppingum við sjókvíaeldi. Sjá hér....

15.12.2011

Dagana 17.-18. nóvember hélt Landssambands fiskeldisstöðva vinnufund í Reykholti í Borgarfirði um stöðu fiskeldis á Íslandi og endurskoðun á stefnumörkun samtakanna frá 2009. Á fundinn mættu á 40 fiskeldis- og vísindamenn. Fyrir vinnufundinn í Reykholt voru haldnir símafundir og að loknum vinnufundi var unnið með vísindamönnum. Í stefnumótunni eru skilgreind verkefni sem forsvarsmenn og starfsmenn fiskeldis­fyrirtækja leggja áherslu á að unnin verða á árunum 2012-2015. Stefnumótun í greininni er mál sem er í sífelldri þróun og endurskoðun eftir því sem ný málefni koma fram. Stefnumótun Landssambands fiskeldisstöðva í rannsókna- og þróunarstarfi 2012-2015 má nálgast hér......

 

12.12.2011

Hraðfrystihúsið- Gunnvör í Hnífsdal sækir um leyfi til aukins fiskeldis í Ísafjarðardjúpi. þeir vilja eiga möguleika á eldi á laxi og silungi. Þekking starfsmanna og aðstaða nýtist við eldi á fleiri tegundum. Skoða frétt....

 

22.11.2011

Glærur frá vinnufundinum um stöðu fiskeldis á Íslandi og endurskoðun á stefnumörkun sem haldin var í Reykholti í Borgarfirði 17 - 18. nóvember s.l. er að finna hér.....

 

16.09.2011

Matorka var með opið hús í fiskeldisstöðinni Fellsmúla í Landsveit 14. september s.l. Kynntar voru Heklubleikja og Hekluborri en einnig gafst tækifæri til að skoða fiskeldisstöðina og kynnast áformum fyrirtækisins m.a. um stækkun stöðvanna. Gestum var boðið að bragða á ýmsu góðgæti úr afurðum félagsins. Um 60 til 80 menn og konur mættu í boðið í einstaklega fallegu veðri.

11.09.2011

Vinnufundur um Aukin samkeppnishæfni bleikjueldis í landeldisstöðvum.
Niðurstöður verkefnavinnu á Hólum í Hjaltadal dagana 8. og 9. september 2011.

Ná í niðurstöður......  Glærur LF.....  Erindi fundarmanna......

1.09.2011

Þorskeldisráðstefna og stjórnun strandsvæða var haldið á Ísafirði 30. og 31. ágúst s.l. í Háskólasetri Vestfjarða. Á fundinum fjallaði framkvæmdastjóri LF um leyfisveitingar í fiskeldi í Noregi.  Glærurnar má nálgast hér .......

24.08.2011

Eldi á laxi í strandeldisstöðvum - 1991. Kennsluhandrit Valdimars Inga Gunnars- sonar . Ná í skýrslu......

5.07.2011

Eldi á 6.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði, Fjarðabyggð. Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eldi á allt að 6.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Reyðarfirði skuli ekki  háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum. Skoða frétt...

24.06.2011

Vefsíða um kynbætur á bleikju. Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra opnaði nú í vikunni nýja vefsíðu um kynbætur á bleikju. Kynbótaverkefnið er starfrækt hjá Háskólann á Hólum sem annast hefur kynbætur á bleikju undanfarin tuttugu ár. Árangur af kynbótunum hefur verið mjög góður og samsvarar því að vaxtarhraði hafi aukist um 3,5% ári. Auk þess hefur tekist að draga úr ótímabærum kynþroska, sem áður var vandamál í bleikjueldi. Skoða kynbótavef...

17.05.2011

Magnús Kr. Guðmundsson heiðraður af fiskeldismönnum. Sjá meira....

17.05.2011

Aðalfundur Landssambands fiskeldisstöðva var haldinn 13. maí í Hópinu á Tálknafirði. Breyting var gerð á stjórn LF. Sjá hér....

17 5.2011

Fjarðalax. Skipulagsstofnun hefur tekið ákvörðun um að eldi á 1.500 tonnum af laxi, að meðaltali á ári, á vegum Fjarðalax ehf. í Fossfirði, Vestubyggð, skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum samkvæmt lögum nr. 106/2000 m.s.b. um mat á umhverfisáhrifum. Sjá meira.....

28.04.2011

Framleiðsla á 3.000 tonnum af laxi í sjókvíum í Arnarfirði á vegum Arnarlax ehf. Skipulagsstofnun hefur ákvarðað að framkvæmdin skuli ekki háð mati á umhverfisáhrifum.  Sjá meira....

6.04.2011

Danir eru að ná mjög góðum árangri í landeldi með endurnýtingu vatns í eldinu sem er allt að 1/13 af vatnsþörf í tjarnareldi.  Sjá meira......

5.04.2011

Ársskýrsla dýralæknis fisksjúkdóma 2010 er komin út.  Árið einkenndist af bjartsýni og framkvæmdagleði á flestum sviðum fiskeldis, ekki síst innan lax- og bleikjueldis. Sjá meira...

1.04.2011

Miðvikudaginn 30. mars var haldinn fundur á Hótel Heklu sem bar yfirskriftina "Tækifæri í fiskeldi á Suðurlandi". Samstarfsaðilar AÞS á fundinum voru Landssamband fiskeldisstöðva og Sjávarútvegsþjónustan. Á fundinn mættu 35 manns. Sjá meira....

 

22.03.2011

Tækifæri í fiskeldi á Suðurlandi - Opinn upplýsingafundur í samstarfi við

Atvinnuþróunarfélags Suðurlands, miðvikudaginn 30. mars kl. 12.00 – 13.30  á Hótel Heklu - 15 km. frá Selfossi. Sjá meira....

 

 

 

 

 

28.02.2011

Af og til eru birtar óvandaðar fréttur um fiskeldi. Síðasta frétt í þessum dúr var birt á vef RÚV 15. janúar s.l. undir yfirskriftinni "Mikið um eiturefni í eldislaxi." Rannsóknir á ísl. eldisfiski sýna að mjög lítið er af þrávirkum efnum í fiskinum, t.d. er magn díoxíns í ísl.eldislaxi aðeins einn tíundi af leyfinlegu hámarki Evrópusambandsins. Sjá grein...

11.11.2010

Mikilli aukningu spáð í framleiðsluverðmæti fiskeldis. Jón Kjartan Jónsson, formaður LF.

22.10.2010

Samantekt niðurstaðna úr vinnu hópa á ráðstefnunni á Hólum 13. og 14. október s.l.

15.10.2010

Miðlun þekkingar til fiskeldismanna. Ráðstefna og vinnufundur á Hólum í Hjaltadal daganna 13. og 14. október sl. Sjá glærur....

29.09.2010

Þorskeldiskvótafundur var haldinn á Tálknafirði 21.-22. september s.l.

Nú eru flest erindi komin á netið og nokkrar myndir sem teknar voru í fundarsal og í skoðunarferð, sjá slóð: http://www.sjavarutvegur.is/thorskeldi/index.htm

13.09.2010

Ársfundur Landssambands fiskeldisstöðva verður á Hólum í Hjaltadal 13. október. n.k. kl. 13:00.  Dagskrá - venjubundin aðalfundarstörf. 

29.08.2010 Frétt með breytingum

Miðlun þekkingar til fiskeldismanna.  Ráðstefna og vinnufundur á Hólum í Hjaltadal 13. og 14. október 2010.  Landssamband fiskeldisstöðva stefnir að því að halda árlega ráðstefnu og vinnufundi með það að markmiði: að miðla niðurstöðum rannsóknaverkefna til greinarinnar, að skapa vettvang fyrir samskipti milli vísindamanna og fiskeldismanna, og skilgreina verkefni sem geta nýst við þróun fiskeldis á Íslandi.  Sjá nánar....

 

20.08.2010

Strok fiska frá norsku sjókvíaeldi; ástæður, afleiðingar og forvarnir.  Sjá skýrslu.....

16.08.2010

Þann 6.–7. september 2010 verður haldin Sjávarútvegsráðstefna á Grand Hótel í Reykjavík. Hugmyndin að Sjávarútvegsráðstefnunni er að skapa samskiptavettvang allra þeirra sem koma að sjávarútvegi á Íslandi. Sjávarútvegsráðstefnan ehf. sem sér um ráðstefnuna er opið félag sem allir geta gerst hluthafar, sjá nánar á vefsíðu félagsins www.sjavarutvegsradstefnan.is en þar er einnig hægt er að sækja dagskrá og aðrar upplýsingar. Skráning fer fram á vefnum http://frontpage.simnet.is/ipg/sjavarreg.asp

1.07.2010

Haldin verður samnorræn ráðstefna um fiskeldi daganna 23 - 24. september n.k. í Bilund, Danmörku.  Helstu viðfangsefni eru: Átakaþættir við eldi á nýjum tegundum, nýjar tegundir í ferskvatnseldi, netverk framleiðenda, vísindamanna og opinberra stofnanna og heimsókn í tæknivætt nýlegt fiskeldi.  Ráðstefnan er studd af Norrænu ráðherranefndinni.  Sjá nánar......

9.06.2010

Tækifæri í fiskeldi og skelrækt á Vestfjörðum gæti skapað 1100 störf og 20.000 tonn af afurðum árið 2018.  Sjá grein verkefnisstjóra AtVest.....

7.06.2010

Fiskeldi á Íslandi árið 2009. Slátrað var 4.995 tonnum af eldisfiski á árinu 2009 að verðmæti 3,7 mi. kr. Af einstökum tegundum var bleikjan í fyrsta sæti með 3.056 tonn, þá þorskur 995 tonn, lax 839 tonn og aðrar tegundir námu rúmlega 103 tonnum. Athyglisvert er hve verðmæti útflutnings á seiðum og frjóguðum hrognum eru mikil en verðmæti frá þessari grein fiskeldis til útflutnings námu um 920 m.kr. Slátrað var 1805 tonnum af þorski en um 995 tonn komu frá þorskeldinu að verðmæti 271 m.kr. en afgangurinn er villtur efniviður.Útflutningur á eldisfiski í heild var rúmlega 3.700 tonn að verðmæti um 3 m.kr. Innanlandsmarkaður tók við um 1.300 tonnum af eldisfisk að verðmæti 708 m.kr. Vísað er í greinargóða ársskýrslu dýralæknis fisksjúkdóma, hér að neðan, um stöðu einstakra tegunda.

3.06.2010

Íslensk þýðing á spurningum og svörum um sjávarútveg og fiskeldi (bls. 109) vegna aðildarumsókn Íslands að ESB. Í samræmi við ákvörðun Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, hafa verið þýddar yfir á íslensku spurningar Evrópusambandsins og svör ráðuneytisins við þeim um sjávarútveg í tengslum við aðildarumsókn Íslands að ESB. Sjá skýrslu....

26.04.2010

Ársskýrsla dýralæknis fisksjúkdóma 2009. Sjá skýrslu....

26.04.2010

Öflugt markaðsstarf mikilvægt í fiskeldi Samherja. Í viðtali við SA-TV segir Jón Kjartan Jónsson , framkvæmdastjóri fiskeldis hjá Samherja, frá því hvernig eldið gengur og hvernig skilningur fólks á mikilvægi framleiðslu hefur aukist eftir bankahrunið 2008. Sjá frétt SA-TV....

19.04.2010

Í vinnslu Rifóss er unninn fiskur alla virka daga ársins og er fyrirtækið mikilvægur vinnustaður í Kelduhverfi með 12 fasta starfsmenn en ársverk eru um 15. Afurðirnar fara mest til útflutnings, einkum til Bandaríkjanna. Rödd atvinnulífsins átti viðtal við Hlífar Karlsson, framkvæmdastjóra Rifóss. Viðtalið við Hlífar má nálgast hér....

19.04.2010

Viðbrögð vegna eldgoss eldgossins í Eyjafjallajökli. Gosið hefur mikil áhrif á þær ár sem flóð frá jökli fara í. Borist hafa tíðindi af fundi á dauðum fiski í farvegi Markarfljóts. Öskufall vegna eldsumbrota er nú austan við jökulinn en getur orðið víðar. Í eldfjallaösku er mikið af eiturefnum eins og flúor og álsamböndum. Aska sem hefur fallið er sérlega fíngerð með mikið yfirborð og hefur hátt innihald þessara efna. Verði mikið öskufall beint í fiskeldisker er hætta á að eldisvatn geti mengast. Flestar stöðvar hafa hinsvegar aðgang að góðu lindarvatni til sinna nota, sem ekki ætti að spillast þó að eitthvað öskufall verði. Verði mikið öskufall ættu eldismenn að reyna verja fiskeldiskerin eins og kostur er.

15.04.2010

Gosaska getur haft áhrif á pH gildi vatns. Reynsla frá Chile gefur til kynna að gosaska getur aukið magn áloxíð í fersku vatni. Sýni sem voru greind frá Chile sýndu að innihald öskunnar var aðallega SiO2 (76%) og Al2O3 (14%). Askan gefur frá sér ál, sýrir vatnið og pH gildið lækkar. Sjá meira...

9.04.2010
Sett hefur verið upp kynning á starfsemi Samherja í máli og myndum á Glerártorgi á Akureyri. Sýningin er áhugaverð fyrir Eyfirðinga sem og aðra gesti þar sem hún lýsir bæði starfseminni innan lands og utan og einnig áhrifum starfseminnar á samfélagið t.d. hér við Eyjafjörð. Sýningin er opin til 19.apríl.


25.03.2010

Í eldisstöð Hafrannsóknastofnunarinnar á Stað við Grindavík er AVS verkefnið "Vaxtageta þorsks" í fullum gangi, sjá frétt AVS....

19.03.2010

Laxeldi Fjarðalax á næsta leyti í Arnarfirði, sjá frétt....

20.01.2010

Vilja auka bleikjuframleiðslu í Hólalaxi í Hjaltadal, sjá frétt RUV....

11.01.2010

Stækkun þorskeldis í Skutulsfirði háð umhverfismati, sjá frétt BB....

Úrskurður Skipulagsstofnunar....


30.12.2009

Eldisfiskur fimmtungur alls hráefnis í vinnslu hjá HG, sjá frétt BB....

11.12.2009

Slátrun hjá Dýrfiski ehf. er lokið. Skoða...

03.12.2009

Þóroddur ehf. á Tálknafirði hefur í hyggju að framleiða 3.000 tonn af laxi....

02.12.2009

Útflutningstekjur af fiskeldi tvöfaldast í 5 milljarða til 2015 - frétt á vísir.is  Skoða...

23.11.2009

Þorskeldiskvótafundurinn 16. nóv. s.l. Erindi frá þorskeldiskvótafundinum eru nú að finna hér....

20.11.2009

Ýmis umfjöllun fréttablaða um fiskeldi og stefnumótun Landssambands fiskeldisstöðva.  Sjá meira...

16.11.2009

Kynning á skýrslunni „Staða fiskeldis á Íslandi, framtíðaráform og stefnumótun rannsókna- og þróunarstarfs 2010 - 2013“. Erindi á kynningunni. Jón Kjartan Jónsson formaður Lf, Framtíðarsýn Landssambands fiskeldisstöðva 2010-2015, sjá glærur... Guðbergur Rúnarsson framkv.st. Lf, Ný rannsókna- og þróunarverkefni 2010-2013, sjá glærur...

12.11.2009

Kynning á skýrslunni „Staða fiskeldis á Íslandi, framtíðaráform og stefnumótun rannsókna- og þróunarstarfs 2010 - 2013". Kynningin fer fram í sal Hafrannsóknarstofnunarinnar, Skúlagötu 4, kl. 11:00 á jarðhæð. Ná í skýrslu...

9.11.2009

Norræna ráðstefnunefndin þakkar öllum sem tóku þátt í ráðstefnunni í Reykjavík 13.-14. október s.l. Nú er hægt að skoða erindin á vefnum.  Sjá nánar...

2.10.2009

Stefnumótunarvinna Lf er enn í fullum gangi eftir fund með fiskeldismönnum á hótel Selfossi 15 og 16. október s.l. Fjórða og 5. nóvember verða fundir með vísinda- mönnum og þeim gefinn kostur á að koma fram með athugasemdir, úrbætur og tillögur um verkefni sem þeirra stofnun hefur áhuga á að taka þátt í. 16. nóvember verður efni stefnumótunarvinnunar kynnt, „Staða fiskeldis á Íslandi, framtíðaráform og stefnumótun rannsókna- og þróunarstarfs 2010 -2013.“ Kynningin fer fram í sal Hafrannsóknarstofnunarinnar, Skúlagötu 4, kl. 11:00 á jarðhæð.

23.09.2009

Eldisbleikjan er næringarrík. Það fer ekkert á milli mála í huga okkar Íslendinga að fiskur og fiskafurðir er bráðholl næring, en það er samt mikilvægt að hafa mælingar og gögn sem sýna að svo sé. AVS sjóðurinn hefur styrkt mælingar á næringarefnum enda nauðsynlegt fyrir útflytjendur að hafa nýjar og áreiðanlegar upplýsingar við hendina.  Sjá nánar...

1.09.2009

Reglugerð nr. 736/2009 frá 28. ágúst 2009 um úthlutun aflaheimilda í þorski vegna tilrauna við föngun fisks til áframeldis og framkvæmd þess. Sjá nánar..... Sjá auglýsingu....

28.082009

Staða bleikjueldis og framtíðarhorfur. Að beiðni Einars Kr. Guðfinnssonar fyrrverandi sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra var Marine Spectrum ehf. falið að taka saman skýrslu um stöðu bleikjueldis á Íslandi. Við upplýsingaöflun var rætt við ýmsa aðila sem tengjast bleikjueldi og eldisstöðvar heimsóttar. Einnig voru fjölmargir staðir skoðaðir vegna vatnstökumöguleika. Skoða skýrslu...

24.08.2009

Góður fundur um þorskeldi á Aqua Nor í Þrándheimi, Noregi, miðvikudaginn 19. ágúst s.l. Sjá meira...

10.08.2009

Samnorræn ráðstefna um eldi á bleikju verður í Reykjavík 13 - 14. október n.k.

Dagskrá ráðstefnunnar er að finna hér....

Skrá þátttöku á ráðstefnuna....

8.07.2009

Á fréttavef sjávarútvegsþjónustunnar, er að finna fiskeldisfréttir en útgáfan er gefin út á þriggja mánaða fresti.  Meðal efnis er nú: Norræn bleikjuráðstefna 13-14 október n.k., vöktun eiturþörunga, norrænt bleikjueldisverkefni, styrkrir AVS árið 2009 o.fl. Sjá meira ....

 

29.06.2009

Eldisbleikjan er í sókn og sala er góð vestanhafs.  Um þessar mundir er hljóðið gott hjá bleikjuframleiðendum. Sala á bleikju gengur vel og staðan sterk, ekki aðeins vegna þess hve gengið er hagstætt fyrir útflutningsgreinarnar, heldur einnig vegna mikillar eftirspurnar á mörkuðum í Bandaríkjunum og nágranaþjóðunum á Norðurlöndunum. Telja margir bleikjuframleiðendur að öll framleiðsla ársins sé seld.  Sjá meira...

4.06.2009

Á árinu 2008 var slátrað 4851 tonni af eldisfiski. Verðmæti eldisfisksins, seiða og hrogna eru rúmir 3,3 milljarðar á árinu 2008.  Alls var slátrað um 3006 tonnum af bleikju að verðmæti 1912 m.kr. Verðmæti hrogna og seiða nam 833 m.kr. Verðmæti eldisþorsk var um 451 m.kr. en slátrað var rúmlega 1500 tonnum af þorski á árinu. Laxinn sem áður trjónaði efstur að magni til er nú aðeins 283 tonn að verðmæti 95 m.kr. Mun minna var framleitt af sandhverfu og lúðu miðað við árið 2007 eða rúm 111 tonn að verðmæti um 72 m.kr.

4.06.2009

Kjör stjórnar á aðalfundi Landssambands fiskeldisstöðva er sem hér segir:

Jón Kjartan Jónsson, formaður.  Meðstjórnendur eru Arnar Freyr Jónsson, Jóhann Geirsson, Jónas Jónasson og Benedikt Kristjánsson.  Í varastjórn voru kosnir Hlífar Karlsson, Hallgrímur Kjartansson og Kristján G. Jóakimsson.  Fundinn sóttu 28 manns.

6.05.2009

Eldi á bleikju gengur vel og bleikjan er í skókn vestanhafsSjá meira....

Bleikjueldi gegnur vel. Grein á vef Hólaskóa.  Sjá meira ....

2.05.2009

Fjármagn til bleikjukynbóta tryggt út árið 2015.  20. apríl s.l. undirrituðu Steingrímur Sigfússon sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Skúli Skúlason rektor Háskólans á Hólum samning um stuðning landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytisins við kynbætur á eldisbleikju. Samningurinn hjóðar upp á árlegt 14 milljón króna framlag og er til fimm ára (2010-2015).  Sjá meira....

17.04.2009

Aðalfundur Landssambands fiskeldisstöðva verður haldinn í kaffistofu Silfurstjörnunnar í Öxarfirði, föstudaginn 29. maí n.k.

 

Dagskrá:

 8:15  Farið frá Akureyrarflugvelli í rútu til fiskeldisstöðvar Silfurstjörnunnar.

11:00  Aðlafundur í  kaffistofu Silfurstjörnunna – Venjuleg aðalfundarstörf.

          Hádegisverður og stöðin skoðuð.  Í eldi eru m.a. lúða, sandhverfa, lax             og bleikja.

14:00  Fiskeldið í  Rifós skoðað.  Í eldi eru lax og bleikja í sjókvíum.

17:00  Fiskeldið í Haukamýrargili skoðað.  Í eldi er bleikja í landkerjum.

19:00  Keyrt til Akureyrarflugvallar.

 

Morgunflug til Akureyrar er kl. 7:15 og kvöldflug frá Akureyri til Reykjavíkur er kl. 20:25.

 

Vinsamlegast staðfestið þátttöku með því að senda tölvupóst á gudbergur@sf.is

30. 03. 2009
Dýrfiskur ehf. setur á laggirnar fiskeldi í Tálknafirði. Í febrúar s.l voru flutt 250 þús. seiði af regnbogasilungi í fiskeldisstöðina í Botni í Tálknafirði. Fyrirtækið hefur tekið eldsstöðina á leigu og mun á næstu mánuðum auka starfsemina í Botni. Seiðin verða síðan flutt í sjóeldiskvíar í Dýrafirði næsta sumar. Jónatan Þórðarson sem veitir starfseminni forstöðu segir að starfsemin í Tálknafirði muni skapa 1-2 stöðugildi fyrst í stað, en áætlanir eru um að byggja upp rekstrarhæfa einingu sem mun skapa 20-30 stöðugildi eins og segir í frétt á vefnum talknafjordur.is.

12.03.2009

Þorskeldiskvótaskýrsla.  Í skýrslunni er yfirlit yfir starfsemina á árinu 2007 en einnig samantekt yfir einstaka þætti allt frá árinu 2002. Sjá meira...

23.02.2009

Í janúar s.l. birtist áhugaverð grein um bleikju í tímaritinu Seafood International undir fyrirsögninni "Green and ready..." Í greinni er m.a. rætt við Jón Kjartan Jónsson framkvæmdastjóra fiskeldis hjá Samherja og John Bottomley forstjóra Agassiz Aquafarm í Kanda. Sjá meira...

2.02.2009

Bleikja vekur hrifningu í Frakklandi.  Samherji hf. tók þátt í gríðarstóru matvælaráðstefnu í Shira í Lyon.  Sjá meira...

30.12.2008

Slátrun á eldisþorksi gengur vel á Djúpavogi. 

Vel hefur gengið að slátra eldisþorski hjá fiskeldi HB Granda á Djúpavogi en slátrun hófst í gær og var henni framhaldið í morgun. Byrjað er að vinna þorskinn, sem slátrað var í gær, í fiskiðjuveri HB Granda á Akranesi en þaðan fer hluti afurðanna ferskur í flugi á erlendan markað í dag. Þær afurðir verða komnar í kæliborð verslana ytra strax í fyrramálið.

"Þetta hefur allt gengið að óskum. Þorskurinn er vel haldinn en meðalvigtin er ívið lægri en við töldum, miðað við prufur, eða um 2 kg að jafnaði,“ segir Kristján Ingimarsson, forstöðumaður fiskeldis HB Granda, en að hans sögn verður um 20 tonnum af fiski slátrað í þessari lotu. Eftir áramót er svo fyrirhugað að slátra um 30 tonnum til viðbótar. Þess má geta að þorskurinn er blóðgaður strax eftir að hann er tekinn úr eldiskvíunum í Berufirði. Þaðan fer hann til Djúpavogs þar sem fiskvinnslufyrirtækið Ósnes sér um slægingu. Flytjandi sér síðan um að flytja slægðan fisk til Akraness.
Þröstur Reynisson, vinnslustjóri fiskvinnslu HB Granda, segir að vinnslan á eldisþorskinum hafi gengið vel. Stærstur hluti afurðanna eru fersk hnakkastykki sem fara á Belgíumarkað. Aðrir hlutar flakanna fara í frystingu. (hbgrandi.is)

15.10.2008

Arctic Charr Seminar in USA. A very successful visit to The Culinary Institute of America. Samherji´s Chef Einar Geirsson and Sales Manager Birgir Össurarson  just returned from the U.S.A. where they promoted Arctic Charr Meira...

15.10.2008

Viðurlögum vegna vanskila staðgreiðslu frestað.  Fjármálaráðherra að höfðu samráði við forsætisráðherra hefur ákveðið að beiting viðurlaga vegna vanskila á staðgreiðslu verði frestað um viku. Meira.... 

14.10.2008

News in English from the Icelandic Prime Minister´s Office.  See more....

14.10.2008

Ástandið í gjaldeyrismálum.  Gjaldeyrishöft hafa verið sett tímabundið á Íslandi. Viðskiptabankar geta afgreitt  gjaldeyrisumsóknir til Seðlabanka Íslands. Vörur á forgangslista verða afgreiddar á 2 dögum.  Erlendar skuldir ættu að afgreiðast á 2 dögum.  Innflutningur á vörum sem ekki hafa forgang þarf að sækja um sérstaklega og þurfa lengri afgreiðslutíma.

14.10.2008

Yfirlýsing frá breska sendiráðinu.  Fyrirtæki sem lent hafa í vandræðum með samskipti við bresk fyrirtæki og bankastofnanir er bent á að upplýsa breska sendiherrann á Íslandi um málið.  Ian Whitting sendiherra Breta á Íslandi hefur lýst því yfir að hann vilji fá slíkar upplýsingar beint til sín.  Vinsamlega komið skilaboðum á þetta netfang: postmaster@britishembassy.is.

1.09.2008

Besta fáanleg tækni (BAT)við fiskeldi á Norðurlöndum.  Skýrslan er útdráttur úr meginskýrslu með sama heiti. Í skýrslunni er lýst bestu fáanlegri tækni (BAT) til að draga úr mengun og nýta auðlindir í fiskeldisiðnaði á Norðurlöndum. Skýrslunni er skipt í tvo kafla: í öðrum er fjallað um fiskeldi á landi en í hinum um fiskeldi í sjó. Í skýrslunni er því lýst hvernig mismunandi tegundir eru framleiddar nú á dögum, lýst umhverfisálagi frá fiskeldinu, nýtingu auðlinda í mismunandi kerfum og mögulegum árangri varðandi nýtingu og mengum með því að beita bestu fáanlegri tækni (BAT).  Hægt er að nálgast skýrsluna á http://www.norden.org/pub/sk/showpub.asp?pubnr=2008:548