9.06.2008
Ný
lög um fiskeldi taka gildi 1. júlí n.k.
Gildissvið laganna taka til eldis vatnafiska og nytjastofna
sjávar á íslensku forráðasvæði.
Landssamband fiskeldisstöðva er hagsmunafélag
fiskeldismanna á Íslandi. Í 4.gr., 3.
mgr. í lögum um fiskeldi segir, "Fiskeldisstöðvar
skulu hafa með sér samtök, Landssamband fiskeldisstöðva
sem gæta sameiginlegra hagsmuna fiskeldismanna".
Sjá lögin.....
3.06.2008
Aðalfundur
LF var haldinn á Akureyri, föstudaginn 30. maí
s.l. Hér má nálgast
myndir frá fundinum og sjóferð í
Eyjafirði.
Sjá myndir.....
Á
fundinum var fjallað um stöðu íslensku
bleikjunnar á alþjóðavettvangi og
þorskeldi á Íslandi en Kristinn Hugason
formaður nefndar um eflingu þorskeldis gerði
grein fyrir störfum nefndarinnar. Í ávarpi
ráðherra var m.a. gerð stuttlega grein fyrir
nýsamþykktum lögum um þennan málaflokk
og nýlegri úthlutun úr AVS-sjóðnum.
Sjá
erindi Kristins og ráðherra.
Valdimar
Ingi Gunnarsson sjávarútvegsfræðingur
fjallaði um stöðu alþjóðlega
stöðu bleikjunnar í dag, en Valdimar tók
þátt á norrænni ráðstefnu
í Noregi s.l. vetur. Sjá
glærur...
Þórarinn
Ólafsson verkefnastjóri fiskeldis hjá
Hraðfrystihúsinu Gunnvöru hf fór yfir
stöðuna í þorskeldi.
Sjá glærur....
7.12.2007
Þorskeldisráðstefna
var haldin á Grand Hóteli 29 og 30. nóvember
2007 um stöðumat og stefnumótun fyrir
þorskeldi skipulagt af fiskeldishópi AVS, sjá
www.fiskeldi.is/thorrad.html
Guðbergur
Rúnararsson framkvæmdastjóri Landssambands
fiskeldisstöðva flutti erindi og gerði grein
fyrir stöðu fiskeldis með aðal áherslu
á arðsemi þorskeldis á Íslandi
miðað við þorskeldið í Noregi.
Skoða
glærur... Lesa
erindi....
1.06.2007
Erindi
flutt á aðalfundi Landssambands fiskeldisstöðva
sem haldinn var á Stað við Grindavík,
31. maí 2007:
-Markaðsetning á íslenskri bleikju,
Kristján Hjaltason. Skoða
glærur...
-Styrkveitingar úr AVS Rannsóknasj. til fiskeldis,
Validmar Ingi Gunnarsson.Skoða
glærur....
-Forvarnir í fiskeldi. Rannveig Björnsdóttir.
Skoða
glærur...
-Nokkrar myndir sem teknar voru í ferðinni.
Skoða
myndir...
27.04.2007
Nokkrar
myndir frá kynningu á bleikju á
sjávarútvegssýningunni í Brussel
24 til 26. apríl sem tókst afar vel. Sjá
myndir...
21.03.2007
Laxeldi
í Berufirði verður hætt.
HB Grandi, aðaleigandi fiskeldisfyrir- tækisins
Salar Islandica á Djúpavogi, hefur ákveðið
að hætta laxeldi í Berufirði. Þess
í stað hyggst fyrirtækið einbeita sér
að tilraunaeldi á þorski. Sjá
frétt
Slátrun
eldisfisks á árinu 2006. Slátrun
á eldisfiski nam 9.928 tonnum á síðasta
ári á móti 8.359 tonnum 2005. Mest var
slátrað af laxi, 6.895 tonnum, bleikju 1.426 tonnum,
þorski 1.410 tonnum en minna af öðrum tegundum.
Reiknað er með nokkrum samdrætti í eldi
fyrir árið 2007 miðað við fyrri ár.
Áætlað er að slátra um 6.800 tonnum
2007. Munar mestu um rúmlega 3.700 tonna samdrátt
milli ára í laxeldi en 1.900 tonna aukning verður
í bleikjueldi. Magntölur í fiskeldi er
að finna undir Hagtölur/eldi.
18.01.2007
Tillögur
vegna markaðsátaks í sölu á
bleikju 2007 til 2009. Skýrsla og kynning
sem Kristján Hjaltason vann fyrir LF með styrk
frá AVS rannsóknasjóði í sjávarútvegi.
Skoða
skýrslu Kristjáns.
Skoða
kynning á skýrslunni.
27.11.2006
Lækkun fóðurkostnaðar í
þorskeldi. Komið hefur í ljós
í verkefni styrkt af AVS að lækka megi próteininnihald
í fóðri hjá þorski þegar
hann er orðin 3-500g að stærð. Almennt er
talið að fóður sé um 40-60% af heildarframleiðslukostnaði
í þorskeldi og rótein í fóðri
er dýrasti hluti þess. Skoða
fréttina...
30.10.06
Rúmlega
100 fiskeldismenn og gestir mættu á ráðstefnuna
um framtíðarsýn og stefnumótun
í íslensku bleikjueldi sem haldin var á
Hótel Loftleiðum, föstudaginn 27. október
2006. Skoða
erindi sem voru flutt á ráðstefnunni.
10.10.06
Finnbogi
Jónsson formaður LF tók við
stöðu framkvæmdastjóra hjá Nýsköpunarsjóð
atvinnulífsins um
miðjan september s.l.
Finnbogi tók við formennsku í félaginu
af Vigfúsi Jóhannssyni í apríl
árið 2004. Landssamband fiskeldisstöðva
þakka Finnboga vel unnin störf og óska honum
velfarnaðar á nýjum vettvangi. Nýr
formaður félagsins er Jón Kjartan Jónsson.
10.06.06
Staða
fiskeldis á Íslandi. Erindi frkvstj.
Landssambands fiskeldisstöðva á hádegisverðarfundi
útflutningshóps FÍS, miðvikudaginn
7. júní s.l. Sjá
glærur.....
26.05.06
Einar
Kristinn Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra
skoðaði sýningarbás Landssambands fiskeldisstöðva
á sjávarútvegssýningunni í
Brüssel á þriðjudaginn 9. maí
s.l.

Þar
var ráðherranum kynnt starfssemi Landsambandsins
í markaðsmálum á bleikju. Þetta
er í fyrsta sinn sem Landssambandið er með
kynningu á bleikju á sjávarútvegssýningunni
í Brussel. Bleikjan vakti þó nokkra athygli
sýningargesta.
24.05.06
Erindi
flutt á aðalfundi Landssambands fiskeldisstöðva
23. maí 2006:
- Heilbrigðismál í fiskeldi.
Gísli Jónsson dýralæknir.
Sjá
glærur...
- Rannsóknir í fiskeldi. Dr. Albert Kjartan
Imsland. Sjá
glærur...
- Icecod verkefnið. Theódór Kristjánsson.
Sjá
glærur...
- Bleikjuráðstefna, 27. október n.k.
Valdimar Ingi Gunnarsson. Sjá
glærur...
- Markaðssetning á eldisfiski frá Íslandi.
Guðbergur Rúnarsson. Sjá
glærur...
- Fóður sem uppfyllir staðla fyrir lífrænt
eldi. Dr. Jón Árnason. Sjá
glærur...
3.05.06
Ráðstefna
um framtíðarsýn og stefnumótun í
íslensku bleikjueldi verður
haldin
í Bíósalnum, Hótel Loftleiðum,
föstudaginn 27. október 2006.
Fara inn á heimasíðu áðstefnunar.
18.04.06
Aðgerðir
vegna stöðu fiskeldis. Fulltrúar
landbúnaðar-, sjávarútvegs- og iðnaðarráðuneytis
hafa átt fundi, m.a. með fulltrúum fiskeldisfyrirtækja,
til að átta sig á stöðunni og leggja
á ráðin varðandi aðgerðir til
stuðnings greininni. Ná
í skjal.
18.04.06
Samherji
kynnir áform sín í fiskeldi í
kjölfar ákvarðanna ríkisstjórnarinnar
um aðgerðir til stuðnings við fiskeldi.
Ná í skjal.
27.01.06
Leiðbeiningar
um áhættumat og viðbragðsáætlanir.
Ná
í skjal.
20.01.06
s.s.
hátt gegniíslensku
krónunnar og hátt raforkuverð knúði
fram þessa ákvörðun stjórnar
Sæsilfurs. Sæsilfur er stærsti laxaframleiðandi
á Íslandi og slátraði 3600 tonnum
á nýliðnu ári.
Sjá fréttatilkynningu.
28.10.05
Stöðugar
framfarir í framleiðslu þorskseiða.
Hafrannsóknastofnunin
á Stað við Grindavík framleiðir
þorskseiði fyrir eldi. Undanfarin þrjú
ár hefur framleiðslan verið í kringum
200 þúsund seiði á ári. Með
stækkun á núverandi starfsemi er mögulegt
að framleiða allt að 6 milljónir seiða
á ári í einni 5.000 ferm. eldisstöð
en það er nægilega mikill efniviður til
að framleiða allt að 20 þúsund tonn
af þorski.
Framleiðsla
þorskseiða á Stað er hluti af kynbótaverkefni
IceCod ehf, sem er í eigu Hafrannsóknastofnunar,
Stofnfisks hf, Fiskeyjar ehf og Þorsks á þurru
landi ehf. Helstu kaupendur þorskseiða eru Salar
Islandica á Berufirði, Síldarvinnslan á
Neskaupsstað og Háafell á Nauteyri við
Ísafjörð.
Vaxtargeta seiðanna hefur aukist með hverjum árgangi.
Búast má við að 2005-árgangurinn
muni ná 4 kg sláturstærð á
tveimur og hálfu ári frá klaki.
Á
næsta ári er von á fyrstu kynslóð
kynbættra seiða með aukin vaxtarhraða sem
lækkar framleiðslukostnað hjá eldisfyrirtækjum
og eykur líkurnar á að eldið skili viðunandi
arðsemi.
Úr
fyrirlestri sem Agnar Steinsson flutti á ráðstefnunni
"Cod Farming in Nordic Countries".Glærur er
að finna á: http://www.fiskeldi.is/codconference.html
17.10.05
Embætti
Yfirdýralæknis lét taka 24 sýni
af landbúnaðarafurðum til mælinga á
díoxínum, díoxínlíkum
PCB efnum og svokölluðum bendi-PCB efnum árin
2003 og 2004. Niðurstöður mælinga benda
til þess að íslenskur eldisfiskur innihaldi
um 1/10 af gildandi mörkum (4pg/g WHO-TEQ blautvigt)
fyrir díoxín í fiski og jafnast hann
við eldisfisk sem hefur lægsta innihald af díoxín
og díoxínlíkum PCB- efnum í N
– Ameríku, Evrópu og Chile.
Sjá greinargerð með niðurstöðum
úr vöktun á díoxínum.
2.08.05
Vísindaráð
EFSA (European Food Safety Authority) hefur að beiðni
Evrópuþingsins rannsakað heilsufarsáhættu
almennings vegna neyslu á eldis- eða villtum fiskum.
EFSA hefur komist að þeirri niðurstöðu
að með tilliti til heilsufarsáhættu sé
engin munur á villtum- eða eldisfiskum. Sjá
samantekt EFSA.
1.06.05
Aðalfundur
LF var haldinn 31. maí s.l. í Húsi
atvinnulífsins, Borgartúni 35. Finnbogi
Jónsson formaður samtakanna setti fundinn og flutti
skýrslu stjórnar. Vigfús Jóhannsson
tók síðan við fundarstjórn.
Ársreikningur félagsins var lagður fram
og samþykktur. Formaður, meðstjórnendur
og varamenn frá 2004 voru einróma endurkosnir.
Erindi
á aðalfundi:
Gísli
Jónsson dýralæknir - Skaðlegir sjúkdómar
og varnarráðstafanir. Glærur
Helgi
Thorarensen - Fiskeldisrannsóknir á bleikju
o.fl. á Hólum. Glærur
Ph.d.
Rannveig Björnsdóttir - Rannsóknir og þróun
á fóðri fyrir lúðu- og þorskseiði.
Glærur
Valdimar
Ingi Gunnarsson - Staða þorskeldis í Noregi.
Glærur
Þórarinn
Ólafsson - Staða þorskeldis á Íslandi.
Glærur
Árni
Ólafsson - Markaður og vinnsla eldisfisks frá
Íslandi. Glærur
Umræður
og fyrirspurnir.
21.01.05
Upplýsingavefur
um fiskeldi. Verkefnið Aquatour
hjá Federation of European Aquaculture Producers er
lokið. Þetta er almennur upplýsingavefur
um fiskeldi, m.a. þorskeldi. Mögulegt er
að fara inn á vefin hér á síðunni
með því klikka á flipann <Eldi>
hér til vinstri.
14.01.05
RF
fær 5 milljónir til uppbyggingar sjókvía-rannsóknamiðstöðvar Sjá
frétt
13.12.04
Rækjueldi
Orkuveitu Reykjavíkur lofar góðu.
Undanfarin ár hefur OR
ásamt fleirum, staðið að tilraun til ræktunar
á risa-rækju og byggt á þekkingaryfirfærslu
og reynslu frá Nýja Sjálandi. Skoða
frétt
26.10.04
Ráðstefna
haldin af Fiskeldishópi AVS og Landssambandi fiskeldisstöðva
á Hótel Loftleiðum , 22. október
2004. Rúmlega 150 menn og konur sóttu
ráðstefnuna. Skoða
erindi
25.10.04
Fiskeldisskýrslan,
Staða og framtíðaráform í Íslensku
fiskeldi kom út 21.10. 2004. Ná
í skýrsluna
31.08.04
Hver
er munurinn á fiskeldi í Chile og Noregi?
Ná í skýrslu Kontali.
24.08.04
Evrópusambandið
hefur undanfarna mánuði haft til meðferðar
beiðni Bretlands um að gripið verði
til verndaraðgerða (safeguard measures) gegn innflutningi
á eldislaxi. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins
hefur nú tekið ákvörðun um að
gripið verði til bráðabirgðaverndarráðstafanna
gegn innflutningi á eldislaxi og munu aðgerðirnar
gilda í 200 daga eða frá og með 15.
ágúst 2004 til 6. febrúar 2005. Sjá
reglugerð Evrópusambandsins.
16.08.04
HB
Grandi tekur virkan þátt í uppbyggingu
fiskeldis á Íslandi og á meðal annars
rúmlega 70% hlut í fiskeldisfyrirtækinu
Salar Islandica á Djúpavogi sem ræktar
fisk í Berufirði. Greint er frá þessu
á heimasíðu HB Granda. meira
3.08.04
5.05.04
Víða
má hagræða í opinberu eftirliti
Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins,
kynnti nýja skýrslu samtakanna á aðalfundi
þeirra, Eftirlit með atvinnustarfsemi – tillögur
til úrbóta.
meira
Finnbogi
Jónsson - Íslandslaxi hf. , formaður.
Vigfús
Jóhannsson - Stofnfiski hf.
Jónatan
Þórðarson - Silungi hf.
Jón
Kjartan Jónsson - Sæsilfri hf.
Arnar
Freyr Jónsson - Fiskey ehf.
Varamenn:
Benedikt
Kristjánsson - Silfurstjörnunni hf.
Jóhann
Geirsson - Fiskeldinu Haukamýrargili.
Gunnar
Steinn Gunnarsson – Salar Islandica hf.
Fundurinn
sem var haldinn í tengslum við aðalfundi LF,
20. apríl s.l. var fjölmennur og mættu u.þ.b.
50 menn og konur á fundinn. Guðni Ágústsson,
landbúnaðarráðherra ávarpaði
fundarmenn.
Fráfarandi
formaður, Vigfús Jóhannsson sagði nokkur
orð og stjórnaði fundinum.
Sigurður Helgason, fisksjúkdómafræðingur
hjá Tilraunastöð HÍ í meinafræði
flutti áhugavert erindi um helstu sjúkdóma
sem er að finna í fiskeldi.
Guðmundur Valur Stefánsson, framkv.st. Sæsilfurs
og Gunnar Steinn Gunnarsson , framkv.st. Salar Islandica gerðu
grein fyrir upphafi laxeldis, stöðu og framtíð
þess á Íslandi.
Jónatan Þórðarson framkv.st. Silungs
flutti erindi um stöðu bleikjueldis og framtíðarhorfur
þess.
Valdimar Ingi Gunnarsson fiskeldisráðgjafi var
með erindi um þorskeldi.
Arnar Jónsson hjá Fiskey flutti erindi um annað
eldi þ.e. um lúðu, sæeyru, sandhverfu
og hlýra. Eftir góð erindi var fundamönnum
gefin kostur á að varpa fram spurningum til framsögumanna.
Að lokum sagði nýkjörinn formaður
LF, Finnbogi Jónsson nokkur orð og þakkaði
m.a. fyrrverandi formanni, Vigfúsi Jóhannssyni
fyrir gott starf sem formaður LF í rúman
áratug.
5.05.04
"Stórhættulegur"
eldislax. Grein eftir Pétur Bjarnason,
12. ágúst 2003. meira
|