Landssamband fiskeldisstöðva (LF) eru samtök fiskeldisgreinarinnar á Íslandi. LF hefur það meginmarkmið að skapa eldisfyrirtækjum hagstæð skilyrði til að vaxa, þróast og bera arð. Landssambandið kappkostar að veita félögum góða þjónustu og að vera öflugur málsvari fiskeldisins í landinu.

Það er mikilvægt að sem allra flest eldisfyrirtæki landsins séu innan vébanda LF svo að það megi endurspegli vilja og viðhorf greinarinnar í heild. Frá sjónarhóli stjórnenda og eigenda hvers fyrirtækis er ekki síður áríðandi að LF verði öflug og einhuga samtök. Verkefni LF lúta m.a. að ákvörðunum stjórnvalda sem hafa bein áhrif á afkomu fyrirtækja, jafnt á innlendum sem erlendum vettvangi.

Sækja umsóknarblað