Landssamband
fiskeldisstöðva (LF) eru samtök fiskeldisgreinarinnar
á Íslandi.
LF hefur það meginmarkmið að skapa eldisfyrirtækjum
hagstæð skilyrði til að þróast
og bera arð.
Verkefni LF lúta m.a. að ákvörðunum
stjórnvalda sem hafa bein áhrif á afkomu
fyrirtækja, jafnt á innlendum sem erlendum
vettvangi.
Mikilvægt er að flest eldisfyrirtæki á
Íslandi séu innan vébanda LF svo að
sambandið endurspegla vilja og viðhorf greinarinnar
í heild.
Frá sjónarhóli stjórnenda og
eigenda hvers fyrirtækis er áríðandi
að LF séu öflug samtök.
Helstu ástæður
og rökstuðningur fyrir að sækja um aðild
í LF eru m.a:
1. Fiskeldismenn þurfa að hafa
styrk og getu til að hafa áhrif á stefnu
stjórnvalda í fiskeldismálum á
hverjum tíma.
2. LF er tengiliður fiskeldismanna við stjórnvöld.
3. Fiskeldið fellur í megin atriðum undir
þrjú ráðuneyti; landbúnaðar-,
umhverfis- og sjávarútvegsráðuneyti
og tilheyrandi eftirlitsstofnanir.
4. Reglugerðir og eftirlit valda oft ágreiningi
sem greinin þarf skoða og finna skynsamlegar lausnir
á.
5. Starfsleyfismál eru flókin og reynsla annarra
getur reynst dýrmæt.
6. LF hefur á liðnum árum verið með
fjölmarga starfandi faghópa. Nú er starfandi
faghópur um gæðamál í fiskeldi.
7. LF er rekið af Samtökum fiskvinnslustöðva
(SF) sem er aðili að og hefur fulltrúa í
Samtökum atvinnulífsins (SA).
8. SA eru öflugur málsvari löggjafar, atvinnustefnu
og í vinnuverndar- og vinnuréttarmálum,
efnahagsstjórnun, skatta- og samkeppnismálum,
umhverfis- og jafnréttismálum, rannsóknar-,
þróunar- og menntamálum. Með inngöngu
í LF er þú jafnframt félagi í
SA.
9. Starfsfræðslunámskeið verða
haldin fyrir starfsmenn fiskeldisstöðva.
10. Mikilvægt er fyrir alla eldismenn að standa
saman um allt eldi og byggja upp þróttmikla
og sjálfstæða starfsgrein.