„Staða
fiskeldis á Íslandi, framtíðaráform
og stefnumótun rannsókna-
og þróunarstarfs 2010 - 2013".
Ná
í skýrslu...
Samnorræn
bleikjuráðstefna 13. - 14 okt. s.l.
Skýrsla,
myndir, heimasíða
24.08.2010
Miðlun
þekkingar til fiskeldismanna. Ráðstefna
og vinnufundur á Hólum í Hjaltadal
13. og 14. október 2010. Landssamband
fiskeldisstöðva stefnir að því
að halda árlega ráðstefnu og vinnufundi
með það að markmiði: að miðla
niðurstöðum rannsóknaverkefna til
greinarinnar, að skapa vettvang fyrir samskipti milli
vísindamanna og fiskeldismanna, og skilgreina verkefni
sem geta nýst við þróun fiskeldis
á Íslandi. Sjá
nánar....
20.08.2010
Strok
fiska frá norsku sjókvíaeldi; ástæður,
afleiðingar og forvarnir. Sjá
skýrslu.....
16.08.2010
Þann
6.–7. september 2010 verður haldin Sjávarútvegsráðstefna
á Grand Hótel í Reykjavík.
Hugmyndin að Sjávarútvegsráðstefnunni
er að skapa samskiptavettvang
allra þeirra sem koma að sjávarútvegi
á Íslandi. Sjávarútvegsráðstefnan
ehf. sem sér um ráðstefnuna er opið
félag sem allir geta gerst hluthafar, sjá
nánar á vefsíðu félagsins
www.sjavarutvegsradstefnan.is
en þar er einnig hægt er að sækja
dagskrá og aðrar upplýsingar. Skráning
fer fram á vefnum http://frontpage.simnet.is/ipg/sjavarreg.asp
1.07.2010
Haldin
verður samnorræn ráðstefna um fiskeldi
daganna 23 - 24. september n.k. í Bilund,
Danmörku. Helstu viðfangsefni eru: Átakaþættir
við eldi á nýjum tegundum, nýjar
tegundir í ferskvatnseldi, netverk framleiðenda,
vísindamanna og opinberra stofnanna og heimsókn
í tæknivætt nýlegt fiskeldi.
Ráðstefnan er studd af Norrænu ráðherranefndinni.
Sjá
nánar......
9.06.2010
Tækifæri
í fiskeldi og skelrækt á Vestfjörðum
gæti skapað 1100 störf og 20.000
tonn af afurðum árið 2018. Sjá
grein verkefnisstjóra AtVest.....
7.06.2010
Fiskeldi
á Íslandi árið 2009.
Slátrað var 4.995 tonnum af eldisfiski á
árinu 2009 að verðmæti 3,7 mi. kr.
Af einstökum tegundum var bleikjan í fyrsta
sæti með 3.056 tonn, þá þorskur
995 tonn, lax 839 tonn og aðrar tegundir námu
rúmlega 103 tonnum. Athyglisvert er hve verðmæti
útflutnings á seiðum og frjóguðum
hrognum eru mikil en verðmæti frá þessari
grein fiskeldis til útflutnings námu um
920 m.kr. Slátrað var 1805 tonnum af þorski
en um 995 tonn komu frá þorskeldinu að
verðmæti 271 m.kr. en afgangurinn er villtur
efniviður.Útflutningur á eldisfiski
í heild var rúmlega 3.700 tonn að verðmæti
um 3 m.kr. Innanlandsmarkaður tók við um
1.300 tonnum af eldisfisk að verðmæti 708
m.kr. Vísað er í greinargóða
ársskýrslu dýralæknis fisksjúkdóma,
hér að neðan, um stöðu einstakra
tegunda.
3.06.2010
Íslensk
þýðing á spurningum og svörum
um sjávarútveg og fiskeldi (bls. 109) vegna
aðildarumsókn Íslands að ESB.
Í samræmi við ákvörðun
Jóns Bjarnasonar, sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra, hafa verið
þýddar yfir á íslensku spurningar
Evrópusambandsins og svör ráðuneytisins
við þeim um sjávarútveg í
tengslum við aðildarumsókn Íslands
að ESB. Sjá
skýrslu....
26.04.2010
Ársskýrsla
dýralæknis fisksjúkdóma 2009.
Sjá
skýrslu....
26.04.2010
Öflugt
markaðsstarf mikilvægt í fiskeldi Samherja.
Í viðtali við SA-TV segir Jón Kjartan
Jónsson , framkvæmdastjóri fiskeldis
hjá Samherja, frá því hvernig
eldið gengur og hvernig skilningur fólks á
mikilvægi framleiðslu hefur aukist eftir bankahrunið
2008. Sjá
frétt SA-TV....
19.04.2010
Í vinnslu Rifóss er unninn fiskur
alla virka daga ársins og er fyrirtækið
mikilvægur vinnustaður í Kelduhverfi
með 12 fasta starfsmenn en ársverk eru um 15.
Afurðirnar fara mest til útflutnings, einkum
til Bandaríkjanna. Rödd atvinnulífsins
átti viðtal við Hlífar Karlsson,
framkvæmdastjóra Rifóss. Viðtalið
við Hlífar má nálgast hér....
19.04.2010
Viðbrögð
vegna eldgoss eldgossins
í Eyjafjallajökli. Gosið hefur
mikil áhrif á þær ár
sem flóð frá jökli fara í.
Borist hafa tíðindi af fundi á dauðum
fiski í farvegi Markarfljóts. Öskufall
vegna eldsumbrota er nú austan við jökulinn
en getur orðið víðar. Í eldfjallaösku
er mikið af eiturefnum eins og flúor og álsamböndum. Aska
sem hefur fallið er sérlega fíngerð
með mikið yfirborð og hefur hátt innihald
þessara efna. Verði mikið öskufall
beint í fiskeldisker er hætta á að
eldisvatn geti mengast. Flestar stöðvar hafa
hinsvegar aðgang að góðu lindarvatni
til sinna nota, sem ekki ætti að spillast þó
að eitthvað öskufall verði. Verði
mikið öskufall ættu eldismenn að reyna
verja fiskeldiskerin eins og kostur er.
15.04.2010
Gosaska
getur haft áhrif á pH gildi vatns.
Reynsla frá Chile gefur til kynna að gosaska
getur aukið magn áloxíð í
fersku vatni. Sýni sem voru greind frá Chile
sýndu að innihald öskunnar var aðallega
SiO2 (76%) og Al2O3 (14%). Askan gefur frá sér
ál, sýrir vatnið og pH gildið lækkar.
Sjá
meira...
9.04.2010
Sett hefur verið upp kynning á starfsemi
Samherja í máli og myndum á
Glerártorgi á Akureyri. Sýningin
er áhugaverð fyrir Eyfirðinga sem og aðra
gesti þar sem hún lýsir bæði
starfseminni innan lands og utan og einnig áhrifum
starfseminnar á samfélagið t.d. hér
við Eyjafjörð. Sýningin er
opin til 19.apríl.

25.03.2010
Í
eldisstöð Hafrannsóknastofnunarinnar á
Stað við Grindavík er AVS verkefnið
"Vaxtageta þorsks" í fullum gangi,
sjá frétt AVS....
19.03.2010
Laxeldi
Fjarðalax á næsta leyti í Arnarfirði,
sjá
frétt....
20.01.2010
Vilja
auka bleikjuframleiðslu í Hólalaxi í
Hjaltadal, sjá
frétt RUV....
11.01.2010
Stækkun
þorskeldis í Skutulsfirði háð
umhverfismati, sjá
frétt BB....
Úrskurður
Skipulagsstofnunar....
30.12.2009
Eldisfiskur
fimmtungur alls hráefnis í vinnslu hjá
HG, sjá
frétt BB....
11.12.2009
Slátrun
hjá Dýrfiski ehf. er lokið. Skoða...
03.12.2009
Þóroddur
ehf. á Tálknafirði hefur í hyggju
að framleiða 3.000 tonn
af laxi....
02.12.2009
Útflutningstekjur
af fiskeldi tvöfaldast í 5 milljarða til
2015 - frétt á vísir.is
Skoða...
23.11.2009
Þorskeldiskvótafundurinn
16. nóv. s.l. Erindi frá þorskeldiskvótafundinum
eru nú að finna hér....
20.11.2009
Ýmis
umfjöllun fréttablaða um fiskeldi
og stefnumótun Landssambands fiskeldisstöðva.
Sjá
meira...
16.11.2009
Kynning
á skýrslunni „Staða
fiskeldis á Íslandi,
framtíðaráform og stefnumótun
rannsókna- og þróunarstarfs 2010 -
2013“. Erindi á kynningunni. Jón
Kjartan Jónsson formaður Lf, Framtíðarsýn
Landssambands fiskeldisstöðva 2010-2015,
sjá glærur... Guðbergur
Rúnarsson framkv.st. Lf, Ný rannsókna-
og þróunarverkefni 2010-2013, sjá
glærur...
12.11.2009
Kynning
á skýrslunni „Staða
fiskeldis á Íslandi,
framtíðaráform og stefnumótun
rannsókna- og þróunarstarfs 2010 -
2013". Kynningin fer fram í sal Hafrannsóknarstofnunarinnar,
Skúlagötu 4, kl. 11:00 á jarðhæð.
Ná
í skýrslu...
9.11.2009
Norræna
ráðstefnunefndin þakkar öllum sem
tóku þátt í ráðstefnunni
í Reykjavík 13.-14. október s.l.
Nú er hægt að skoða erindin á
vefnum.
Sjá nánar...
2.10.2009
Stefnumótunarvinna
Lf er enn í fullum gangi eftir fund með
fiskeldismönnum á hótel Selfossi 15
og 16. október s.l. Fjórða og 5. nóvember
verða fundir með vísinda- mönnum og
þeim gefinn kostur á að koma fram með
athugasemdir, úrbætur og tillögur um
verkefni sem þeirra stofnun hefur áhuga á
að taka þátt í. 16. nóvember
verður efni stefnumótunarvinnunar kynnt, „Staða
fiskeldis á Íslandi, framtíðaráform
og stefnumótun rannsókna- og þróunarstarfs
2010 -2013.“ Kynningin fer fram í sal Hafrannsóknarstofnunarinnar,
Skúlagötu 4, kl. 11:00 á jarðhæð.
23.09.2009
Eldisbleikjan
er næringarrík. Það fer
ekkert á milli mála í huga okkar
Íslendinga að fiskur og fiskafurðir er
bráðholl næring, en það er
samt mikilvægt að hafa mælingar og gögn
sem sýna að svo sé. AVS sjóðurinn
hefur styrkt mælingar á næringarefnum
enda nauðsynlegt fyrir útflytjendur að
hafa nýjar og áreiðanlegar upplýsingar
við hendina. Sjá
nánar...
1.09.2009
Reglugerð
nr. 736/2009 frá 28. ágúst 2009 um
úthlutun aflaheimilda í þorski
vegna tilrauna við föngun fisks til áframeldis
og framkvæmd þess. Sjá
nánar..... Sjá
auglýsingu....
28.082009
Staða
bleikjueldis og framtíðarhorfur. Að
beiðni Einars Kr. Guðfinnssonar fyrrverandi sjávarútvegs
og landbúnaðarráðherra var Marine
Spectrum ehf. falið að taka saman skýrslu
um stöðu bleikjueldis á Íslandi.
Við upplýsingaöflun var rætt við
ýmsa aðila sem tengjast bleikjueldi og eldisstöðvar
heimsóttar. Einnig voru fjölmargir staðir
skoðaðir vegna vatnstökumöguleika. Skoða
skýrslu...
24.08.2009
Góður
fundur um þorskeldi á Aqua Nor í
Þrándheimi, Noregi, miðvikudaginn 19.
ágúst s.l.
Sjá meira...
10.08.2009
Samnorræn
ráðstefna um eldi á bleikju verður
í Reykjavík 13 - 14. október n.k.
Dagskrá
ráðstefnunnar er að finna hér....
Skrá
þátttöku á ráðstefnuna....
8.07.2009
Á
fréttavef sjávarútvegsþjónustunnar,
er að finna fiskeldisfréttir en útgáfan
er gefin út á þriggja mánaða
fresti. Meðal efnis er nú: Norræn
bleikjuráðstefna 13-14 október n.k.,
vöktun eiturþörunga, norrænt bleikjueldisverkefni,
styrkrir AVS árið 2009 o.fl. Sjá
meira ....
29.06.2009
Eldisbleikjan
er í sókn og sala er góð vestanhafs.
Um þessar mundir er hljóðið gott
hjá bleikjuframleiðendum. Sala á bleikju
gengur vel og staðan sterk, ekki aðeins vegna
þess hve gengið er hagstætt fyrir útflutningsgreinarnar,
heldur einnig vegna mikillar eftirspurnar á mörkuðum
í Bandaríkjunum og nágranaþjóðunum
á Norðurlöndunum. Telja margir bleikjuframleiðendur
að öll framleiðsla ársins sé
seld. Sjá
meira...
4.06.2009
Á
árinu 2008 var slátrað 4851 tonni af
eldisfiski. Verðmæti eldisfisksins,
seiða og hrogna eru rúmir 3,3 milljarðar
á árinu 2008. Alls var slátrað
um 3006 tonnum af bleikju að verðmæti 1912
m.kr. Verðmæti hrogna og seiða nam 833 m.kr.
Verðmæti eldisþorsk var um 451 m.kr. en
slátrað var rúmlega 1500 tonnum af þorski
á árinu. Laxinn sem áður trjónaði
efstur að magni til er nú aðeins 283 tonn
að verðmæti 95 m.kr. Mun minna var framleitt
af sandhverfu og lúðu miðað við
árið 2007 eða rúm 111 tonn að
verðmæti um 72 m.kr.
4.06.2009
Kjör
stjórnar á aðalfundi Landssambands fiskeldisstöðva
er sem hér segir:
Jón
Kjartan Jónsson, formaður. Meðstjórnendur
eru Arnar Freyr Jónsson, Jóhann Geirsson,
Jónas Jónasson og Benedikt Kristjánsson.
Í varastjórn voru kosnir Hlífar Karlsson,
Hallgrímur Kjartansson og Kristján G. Jóakimsson.
Fundinn sóttu 28 manns.
6.05.2009
Eldi
á bleikju gengur vel og bleikjan er í skókn
vestanhafs. Sjá
meira....
Bleikjueldi gegnur vel. Grein á vef Hólaskóa.
Sjá
meira ....
2.05.2009
Fjármagn
til bleikjukynbóta tryggt út árið
2015. 20. apríl s.l. undirrituðu
Steingrímur Sigfússon sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra og Skúli
Skúlason rektor Háskólans á
Hólum samning um stuðning landbúnaðar-
og sjávarútvegsráðuneytisins
við kynbætur á eldisbleikju. Samningurinn
hjóðar upp á árlegt 14 milljón
króna framlag og er til fimm ára (2010-2015).
Sjá
meira....
17.04.2009
Aðalfundur
Landssambands fiskeldisstöðva verður haldinn
í kaffistofu Silfurstjörnunnar í Öxarfirði,
föstudaginn 29. maí n.k.
Dagskrá:
8:15
Farið frá Akureyrarflugvelli í
rútu til fiskeldisstöðvar Silfurstjörnunnar.
11:00
Aðlafundur í kaffistofu Silfurstjörnunna
– Venjuleg aðalfundarstörf.
Hádegisverður
og stöðin skoðuð. Í eldi
eru m.a. lúða, sandhverfa, lax
og bleikja.
14:00
Fiskeldið í Rifós skoðað.
Í eldi eru lax og bleikja í sjókvíum.
17:00
Fiskeldið í Haukamýrargili skoðað.
Í eldi er bleikja í landkerjum.
19:00
Keyrt til Akureyrarflugvallar.
Morgunflug
til Akureyrar er kl. 7:15 og kvöldflug frá
Akureyri til Reykjavíkur er kl. 20:25.
Vinsamlegast
staðfestið þátttöku með
því að senda tölvupóst á
gudbergur@sf.is
30.
03. 2009
Dýrfiskur ehf. setur á laggirnar
fiskeldi í Tálknafirði. Í
febrúar s.l voru flutt 250 þús. seiði
af regnbogasilungi í fiskeldisstöðina
í Botni í Tálknafirði. Fyrirtækið
hefur tekið eldsstöðina á leigu og
mun á næstu mánuðum auka starfsemina
í Botni. Seiðin verða síðan
flutt í sjóeldiskvíar í Dýrafirði
næsta sumar. Jónatan Þórðarson
sem veitir starfseminni forstöðu segir að
starfsemin í Tálknafirði muni skapa
1-2 stöðugildi fyrst í stað, en áætlanir
eru um að byggja upp rekstrarhæfa einingu sem
mun skapa 20-30 stöðugildi eins og segir í
frétt á vefnum talknafjordur.is.
12.03.2009
Þorskeldiskvótaskýrsla.
Í skýrslunni er yfirlit yfir starfsemina
á árinu 2007 en einnig samantekt yfir einstaka
þætti allt frá árinu 2002. Sjá
meira...
23.02.2009
Í
janúar s.l. birtist áhugaverð grein
um bleikju í tímaritinu Seafood International
undir fyrirsögninni "Green and ready..."
Í greinni er m.a. rætt við Jón
Kjartan Jónsson framkvæmdastjóra fiskeldis
hjá Samherja og John Bottomley forstjóra
Agassiz Aquafarm í Kanda. Sjá
meira...
2.02.2009
Bleikja
vekur hrifningu í Frakklandi. Samherji
hf. tók þátt í gríðarstóru
matvælaráðstefnu í Shira í
Lyon. Sjá
meira...
30.12.2008
Slátrun
á eldisþorksi gengur vel á Djúpavogi.
Vel
hefur gengið að slátra eldisþorski
hjá fiskeldi HB Granda á Djúpavogi
en slátrun hófst í gær og var
henni framhaldið í morgun. Byrjað er að
vinna þorskinn, sem slátrað var í
gær, í fiskiðjuveri HB Granda á
Akranesi en þaðan fer hluti afurðanna ferskur
í flugi á erlendan markað í dag.
Þær afurðir verða komnar í
kæliborð verslana ytra strax í fyrramálið.
"Þetta
hefur allt gengið að óskum. Þorskurinn
er vel haldinn en meðalvigtin er ívið lægri
en við töldum, miðað við prufur,
eða um 2 kg að jafnaði,“ segir Kristján
Ingimarsson, forstöðumaður fiskeldis HB Granda,
en að hans sögn verður um 20 tonnum af fiski
slátrað í þessari lotu. Eftir
áramót er svo fyrirhugað að slátra
um 30 tonnum til viðbótar. Þess má
geta að þorskurinn er blóðgaður
strax eftir að hann er tekinn úr eldiskvíunum
í Berufirði. Þaðan fer hann til Djúpavogs
þar sem fiskvinnslufyrirtækið Ósnes
sér um slægingu. Flytjandi sér síðan
um að flytja slægðan fisk til Akraness.
Þröstur Reynisson, vinnslustjóri fiskvinnslu
HB Granda, segir að vinnslan á eldisþorskinum
hafi gengið vel. Stærstur hluti afurðanna
eru fersk hnakkastykki sem fara á Belgíumarkað.
Aðrir hlutar flakanna fara í frystingu. (hbgrandi.is)
15.10.2008
Arctic Charr Seminar in USA. A
very successful visit to The Culinary Institute of America.
Samherji´s Chef Einar
Geirsson and Sales Manager Birgir Össurarson
just returned from the U.S.A. where they promoted Arctic
Charr.
Meira...
15.10.2008
Viðurlögum
vegna vanskila staðgreiðslu frestað.
Fjármálaráðherra að höfðu
samráði við forsætisráðherra
hefur ákveðið að beiting viðurlaga
vegna vanskila á staðgreiðslu verði
frestað um viku. Meira....
14.10.2008
News
in English from the Icelandic Prime Minister´s
Office. See
more....
14.10.2008
Ástandið
í gjaldeyrismálum. Gjaldeyrishöft
hafa verið sett tímabundið á Íslandi.
Viðskiptabankar geta afgreitt gjaldeyrisumsóknir
til Seðlabanka Íslands. Vörur á
forgangslista verða afgreiddar á 2 dögum.
Erlendar skuldir ættu að afgreiðast á
2 dögum. Innflutningur á vörum
sem ekki hafa forgang þarf að sækja um
sérstaklega og þurfa lengri afgreiðslutíma.
14.10.2008
Yfirlýsing
frá breska sendiráðinu. Fyrirtæki
sem lent hafa í vandræðum með
samskipti við bresk fyrirtæki og bankastofnanir
er bent á að upplýsa breska sendiherrann
á Íslandi um málið. Ian
Whitting sendiherra Breta á Íslandi hefur
lýst því yfir að hann vilji fá
slíkar upplýsingar beint til sín.
Vinsamlega komið skilaboðum á þetta
netfang: postmaster@britishembassy.is.
1.09.2008
Besta
fáanleg tækni (BAT)við fiskeldi á
Norðurlöndum. Skýrslan
er útdráttur úr meginskýrslu
með sama heiti. Í skýrslunni er lýst
bestu fáanlegri tækni (BAT) til að draga
úr mengun og nýta auðlindir í
fiskeldisiðnaði á Norðurlöndum.
Skýrslunni er skipt í tvo kafla: í
öðrum er fjallað um fiskeldi á landi
en í hinum um fiskeldi í sjó. Í
skýrslunni er því lýst hvernig
mismunandi tegundir eru framleiddar nú á
dögum, lýst umhverfisálagi frá
fiskeldinu, nýtingu auðlinda í mismunandi
kerfum og mögulegum árangri varðandi nýtingu
og mengum með því að beita bestu
fáanlegri tækni (BAT). Hægt er
að nálgast skýrsluna á http://www.norden.org/pub/sk/showpub.asp?pubnr=2008:548